a.sub wrote:which is why we all should just forget all languages except something psychotically hard, like icelandic
Fjárhagsáætlun Bolungarvíkur fyrir árið 2009 var samþykkt í gær með fjórum atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar sátu hjá. Helstu breytingar á gjaldskrám og fjárhagsáætlun frá fyrri umræðu eru þær að tekjur frá Jöfnunarsjóði eru áætlaðar 132,7 milljónir króna í stað 138 milljóna króna. Munar þar mest um að fasteignaskattsjöfnun lækkar um 4 milljónir og útgjaldajöfnunarframlag er áætlað 1,3 milljónum lægra en í frumvarpinu til fyrri umræðu. Styrkur vegna þróunarverkefnis á sviði þjónustu við íbúa af erlendum uppruna er hækkaður úr tveimur milljónum í fjórar milljónir, en samningur við félagsmálaráðuneytið þess efnis var undirritaður í síðustu viku.
Reiknað er með að almenn hafnargjöld hækki um eina milljón króna, vörugjöld hækki um 650 þúsund krónur og aðrar tekjur hækki um eina milljón frá fyrra frumvarpi. Tekjur aðalsjóðs hækki um eina milljón vegna hækkunar á þátttöku hafnarinnar í skrifstofu- og stjórnunarkostnaði. Gert er ráð fyrir að niðurgreiðslur vegna vistunar barna hjá dagmæðrum verði 2,7 milljónir króna á árinu, sem ekki var reiknað með í fyrra frumvarpi. Gert er ráð fyrir að 1,5 milljón meiri sparnaði í áhaldahúsi og eignasjóði en gert var ráð fyrir við fyrri umræðu. Gjöld hafnarinnar vaxa um eina milljón króna vegna þátttöku í skrifstofukostnaði. Aðrar breytingar eru óverulegar frá fyrri umræðu.
Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir að skatttekjur sveitarfélagsins verði 317 milljónir króna. Þar af er útsvarið 287 milljónir og fasteignaskattur 30 milljónir. „Búið er að fara yfir stöðuna, greina vandamálin og leggja til lausnir. Bæjarfulltrúar sýna ábyrgð með því að standa saman að erfiðum ákvörðunum sem ekki verður komist hjá að taka. Rétt er að hafa hugfast að þær áætlanir sem bæjarstjórn hefur sett fram miða allar að því að gera stöðu byggðarlagsins betri þegar til lengri tíma er litið“, segir í stefnuræðu bæjarstjóra en hana má nálgast á vef Bolungarvíkur.